1. |
Súkkulaði og rítalín
05:03
|
|||
Meðan nóttin líður ennþá virðist ung
og ég veit að hún mun fylgja þér
eins og þú óskaðir þér.
Allt sem þú óskaðir þér
og ég horfi á tímann líða,
ekkert betra en að sitja og bíða
og ég brýt heilann
og ég deili þér ef ég gleymi mér.
Morgundagur rís í lífsins paradís.
Morgunhiminn roðar skýjablær
Morgundagur rís í lífsins paradís,
dimmu og djörfu paradís.
Leyfum henni að fara,
ekkert sjálfsagðara
meðan hann að morgni rís.
Ef að þessi dagur gerist geðbilaður.
Súkkulaði og rítalín.
Meðan myrkrið eignast mig.
Kvöldsól læðist og leggur mér lið.
Næturgalsi gefur gamanið,
hann er mér við hlið,
mér við hlið,
mér við hlið.
En ég vil ekki vinna hér.
Ég vil vera ung og skemmta mér
meðan nótt ber að á ég samastað.
Af leið lætur þú,
af leið lætur þú.
Leyfum henni að fara,
ekkert sjálfsagðara
meðan hann að morgni rís.
Ef að þessi dagur gerist geðbilaður.
Súkkulaði og rítalín.
Meðan myrkrið eignast mig.
|
||||
2. |
Mannætublús
04:14
|
|||
Æ, ég get ekki sofnað
því aum og soltin ég er.
Öll samskipti hafa rofnað
og berst ég við þennan her.
Í súpu vilja setja mig,
samband okkar er þannig.
Þau mig vilja þaum mig þrá.
Þau mig skulu aldrei ná...
...Og hjarta mitt hamast
og ískur í eyru mín skir.
Af ótta minn líkami lamast
og liturinn úr augunum fer
Tifar tímasprengja.
Tifar hún um nótt.
Nú líf mitt vil ekki lengja
og loksins ég sofna rótt
Í súpu vilja setja mig,
samband okkar er þannig.
Þau mig vilja þaum mig þrá.
Þau mig skulu aldrei ná.
Þeim finnst þetta of gaman.
Hlæja meðan allt saman
mallar heitum potti í,
skála svo í martiní.
|
||||
3. |
Sjálfsali
03:56
|
|||
Hey þú,
Afhverju skiptirðu um stíl?
Vildur þú fá fínan bíl?
Og Nú
þú aðeins hugsar um gull.
Þín fjársjóðskista er full.
En ég spyr;
Færir það þér hamingju?
Þínir draumar og þínar mörgu þrár
voru þúsund en eru nú þrjár.
Að eignast aðeins silfur, gull og demanta.
Þú átt
allt sem að gull þitt gat keypt.
Þitt val í stein er nú greipt
og fátt
sem að þú eitt sinn þráðir.
Er það sem þú hér þáðir.
Ég hugsa;
Ha? Færir það þér hamingju?
|
||||
4. |
Silkiskór sælkerans
05:45
|
|||
Stórfengleg minning
föst inní huga
ég leyfði þér að ljúga
en hvað er það núna
sem þú villtfá að muna?
Viltu vita það,
viltu hann,
sannleikann?
Í paradís þú heldur að þú sért
en græðgin hefur skinsemina skert
og brátt ég mun þig eiga...
Spegilmynd sannleikanns
falin í samning.
Fjötrarnir bleki úr.
Þeir halda þér föstum
gegn fortíðarköstum
Sem að herjá þig
(verja þig)
heltaka þig.
Í paradís þú heldur að þú sért
en græðgin hefur skynsemina skert
og paradís, hún er ekki það sem þú heldur.
En hver varstu þá og hver ertu nú?
|
||||
5. |
Gleymérei
03:45
|
|||
Aldrei verið svona kalt
allt minnkar margfalt.
Ég svíf hægt um sporbaug þinn.
Ég hverf nú um sinn.
Og nú ég sé
að ég var
sjálfsali.
Fældi fólk frá,
fortíðarþrá
tekur mig
Ofar skýjum sigldi fley
í geimryki og gammaþey
og halastjarnan hljó svo blítt
með hlýlegt bros og hárið sítt.
Pláneturnar heilsuðu
og loftsteinarnir dönsuðu
og loks flaug ég heim.
Þú lofaðir að gleymérei.
Étin upp af jakkafötum
vindlum og mynt.
Ég hef lent á villigötum
ekki lífinu sinnt.
Og nú ég sé
að ég var
illa blekkt.
Tímanum leið
sat ekki' og beið
í hjartað sveið
|
||||
6. |
"Úff"
05:04
|
|||
Veröldim sem virtist svo blá
virðist einmana.
Tóm án hugsananna,
grá.
Fegurð hvert sem litið var á.
Fór hún burtu senn.
Ekkert lifir þar henni
á.
Græðgin þessi óþarfa þrá
engan hafi' auðgað.
Alltaf var okkur að
hrjá.
Smám saman féll fjöldi fólks frá
heilir þjóðflokkar.
Þetta var okkar
vá.
Samið um frið
en of löng var sú bið.
Ekki' aftur snúið.
Allt líf er nú búið.
Úff
|
Milkhouse Iceland
Milkhouse er íslensk hljómsveit, samansett af fimm meðlimum úr Hafnarfirðinum.
Milkhouse is an Icelandic band, composed of five members from the town of Hafnarfjörður.
milkhouse96@gmail.com
Streaming and Download help
If you like Milkhouse, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp